Tíminn flígur áfram og börnin ykkar stækka og dafna vel í leikskólanum sínum. Það er yndislegt að koma inn á Álfastein og Dvergastein þar sem litlu börnin stunda nám, þau eru svo dugleg og miklir yndismolar.
Í morgun var flæði á milli þessara tveggja deilda en þá geta börnin skottast á milli deildanna og leikið. Litlu börnin á Álfasteini hafa svo gott af að kynnast fleiri leiksvæðum en sem eru inni á Álfasteini og börnunum á Dvergasteini sem voru á Álfasteini síðastliðið ár finnst mjög gaman að fara í heimsókn á gömlu deildina sína og leika.
Á Völusteini og Töfrasteini gengur námið hjá börnunum líka vel. Þau eru líka svo miklir yndismolar þessar elskur. Þau eru dugleg að leika bæði inni og úti. En það er akkúrat það sem við viljum að börnin ykkar geti gleymt sér í leik með vinum sínum og geti notið leikskólans og alls sem hann hefur upp á að bjóða sem best og nái að þroskast í gegnum leikinn á sínum forsendum.
Allar vikur eru skemmtilegar í leikskólanum en þegar hrekkjuvakan kemur er sérstaklega gaman hjá börnunum ykkar. Tilhlökkunin leynir sér ekki og heyrist stundum í samtölum barnanna að þau eru að tala um þennan dag.
Þar til næst
framkvæmdarstjóri