Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS) hefur verið falið af sveitarfélögunum á svæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
ÁBYRGÐ FORELDRA/FORRÁÐAMANNA
Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgist sjálfir með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum upplýsingum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni. Aðstæður geta þróast með ófyrirséðum hætti og verið mismunandi eftir hverfum og svæðum.
Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema annað sé tilkynnt. Í upphafi skóladags getur tafist að fullmanna skóla og mega foreldrar þá búist við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Foreldrar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.
Foreldrar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í grunnskóla, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla, skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlilegar fjarvistir. Sama gildir ef börn eða foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.
Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. vegna vanbúinnar bifreiðar til vetraraksturs.

TILKYNNINGAR Tilkynningar eru settar fram í samvinnu við Veðurstofu Íslands og er þá viðvörunarkerfi hennar haft til hliðsjónar. Nánari upplýsingar http://www.vedur.is/media/frettir-myndasafn-2017/large/arhrifafylki_vefur_x.jpg
Hafi Veðurstofan gefið út gula , appelsínugula eða rauða viðvörun þá eru tilkynningar virkjaðar. Kappkostað er að senda tímanlega út tilkynningu um röskun á skóla- og frístundastarfi í samstarfi við útvarpsstöðvar og vefmiðla og er miðað við að þær berist eigi síðar en kl. 7 að morgni. Áríðandi er að foreldrar fylgist með tilkynningum og fari að tilmælum. Símkerfi skóla eru misvel undir það búin að anna miklu álagi og er foreldrum því bent á að fylgjast vel með veðri og tilkynningum og afla upplýsinga í fjölmiðlum, á vefsíðum skóla og slökkviliðsins (shs.is). Einnig má fá upplýsingar á Facebook-síðum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Foreldrar skulu ævinlega leita eftir staðfestum tilkynningum yfirvalda.
Útsendar tilkynningar SHS eiga ávallt við um höfuðborgarsvæðið í heild, en aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og bæjarhlutum.

TILKYNNINGAR VERÐA EFTIRFARANDI:
1. Daginn áður vegna veðurspár (gul , appelsínugul eða rauð viðvörun fyrir daginn eftir). (Sé veður í lagi er sjaldnast send út tilkynning vegna þessa en ítrekað fyrir foreldrum að fylgjast með veðri).
2. Að morgni dags vegna óveðurs eða færðar (gul , appelsínugul eða rauð viðvörun að morgni dags).
3. Síðdegis ef veður hefur versnað meðan á skólahaldi/frístundastarfi stendur (gul , appelsínugul eða rauð viðvörun síðdegis).
4. Að morgni dags ef óveður hamlar skólahaldi (rauð viðvörun).

Leiðbeiningar þessar eru ætlaðar „yngri börnum“ það er börnum yngri en 12 ára, athugið að hér er aðeins um viðmið að ræða sem er háð meti foreldra/forráðamanna.

Nánari upplýsingar eru á shs.is og á Facebook-síðum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Almannavarnir höfuðborgarsvæðisins Skógarhlíð 14 – 105 Reykjavík sími 5283000-shs@shs.is – shs.is