Kæru foreldrar

Nú fer hópastarf barnanna sem eru fædd árin 2013 og 2014 að hefjast. Unnið verður með þau einu sinni í viku í þematengdu starfi. Börnin fædd 2013 munu ákveð sjálf hvað þau vilja vinna með  en börn fædd 2014 vinna með líkamsvitundina,  og fjölskylduna. Börnunum finnst alltaf gaman að fara í hópastarf og það er yndislegt að fylgjast með því hvað einbeitingarþráðurinn lengist smátt og smátt eftir því sem líður á veturinn. Börnin stór og smá þroskast hér í Vinaminni á sínum forsendum í gegnum leikinn.