Loks kom sumarið og við höfum notið veðurblíðunnar. Munum eftir sólarvörninni. Gott að setja á börnin heima á morgnanna áður en þau koma í skólann og svo getum við sett á þau eftir hádegi aftur. Við eigum Eucerin krem 30. Ef það er ósk um að nota aðra vörn þarf að koma með hana í leikskólann.

Vísdómsstundir ganga vel og mikill spenningur fyrir vísdómsstundaslitum. Í dag kom Umferðarskólinn til okkar með fræðslu t.d. um notkun hjálma.

Hópastarf gengur líka vel og vinnum að margvíslegum verkefnum. Hér er mynd frá því fyrr í dag. Allir glaðir í sólinni.